26.01.2007 16:20:34 / EinarGudna

www.lesblindan.com

Ég vil benda öllu því fallega fólki sem á það til að heimsækja þessa síðu að við erum komnir með nýja síðu : www.lesblindan.com ! Á þessari nýju síðu á fegurðin eftir að ráða ríkjum og málgleði glöggra einstaklinga fá útrás í rituðu máli.

Ég bið ykkur því að heimsækja þessa nýju síðu, en umfram allt að njóta hennar til hins ítrasta!


» 0 hafa sagt sína skoðun

18.01.2007 18:21:58 / EinarGudna

Ný síða á leiðinni!

Gott kvöld kæru vinir!

Langþráður draumur er að verða að veruleika! Eftir "áskoranir" frá starfsmönnum 365 Miðla bauðst Stefán Birgir Stefánsson hjá SBS vefsmíði ,sem meðal annars heldur uppi sbs.is, til að hjálpa mér að setja upp alvöru heimasíðu. Ég þáði boðið að sjálfsögðu með þökkum. Við Stefán erum byrjaðir að hanna nýja og stórkostlega síðu sem verður tilbúin fljótlega eftir helgi.

Þetta þýðir þó ekki að ég ætli að eyða þessari ágætu síðu. Ég ætla bara að flytja mig um set. Þið ráðið bara hvort þið komið með eða ekki.

Nú spyr ég ykkur strákar, hvernig líst ykkur á, viljið þið vera með og hvað eigum við að láta síðuna heita?

» 12 hafa sagt sína skoðun

14.01.2007 21:38:37 / EinarGudna

Tignarlegustu Rokkararnir!


Um daginn sendi hann SBS mér tengil af b2 þar sem var listi yfir 10 ljótustu rokkarana. Það var ung dama sem gerði þennan lista. Ég geri ráð fyrir að hún heiti Íris Fríða þar sem síðan hennar er irisfrida.bloggar.is. Ég mæli með því að þið skoðið þennan lista. Þetta var skemmtilegur listi hjá stúlkunni.

En það er oftar en ekki þar sem fólk talar um ljóta rokkara. Ég vil þess vegna koma með annað sjónarhorn, og það er 10 Tignarlegustu Rokkarana. Ef þið vitið ekki hvað ég á við með tignarlegur þá þýðir það myndarlegur, hár eða mikilfenglegur..

10.Chris Ross úr Wolfmother. Nettur 70’s still yfir honum. Hrokkinhærður með mottu. Klikkar varla! Það er alveg ótrúlegt að sjá þennan snilling á sviði. Sérstaklega þegar hann spilaði á bassann og hljómborðið á sama tíma.

9. Sakke Jarvenpaa. Forsprakki Leningrad Cowboys. Ég þarf ekki að segja meira.

8. Zakk Wylde. Gítarleikar Ozzy og maðurinn í Black Label Society. Með hár niður á rass og skegg niður á bringu. Hann spilar svo hratt að maður greinir ekki fingurnar á honum í hægri endursýningu. Hann býr uppi í fjöllum og á vangefið svalan pick up. Bindindismaður sem slakar á við að lyfta lóðum og spila á gítar.

7. Óttar Proppé. Ham, Dr. Spock og Rass. Ef þið vitið ekki hver hann er hafið þið verið sofandi síðustu 15 árin. Líkaminn, hárið, röddin, gleraugun, fötin, hann er tignarlegur í öllu sem hann gerir. Fyrir utan Óskabörn þjóðarinnar sem var frekar vandræðaleg mynd. (Ef einhver þarna úti á soundtrackið úr þessari mynd þá yrði ég glaður ef ég mætti skrifa það hjá honum)

6. D’Arcy úr Smashing Pumpkins. Ótrúlega tignarleg og glæsileg kona. Þegar hún heldur á bassanum er hún voldug, yfirveguð og sexy. Nær því ekki að vera rokkdrusla. Er bara of glæsileg til þess.


5. John Bonham. Ég sé hann bara fyrir mér með stóran vindil í kjaftinum og vélbyssu. Þið vitið hvað ég á við....

4. Josh Homme. Fulltrúi rauðhærðra á listanum. Elvis okkar tíma. Hann syngur, spilar á gítar, bassa og trommur allt eftir því hvað þarf á hverjum tíma. Heili og gítarleikari bestu stoner rokk hljómsveitar veraldar, Kyuss. Einnig trommari Eagles Of Death Metal, og MAÐURINN í Oueens Of The Stone Age og Dessert Session. Hann hefur líka hjálpað honum Nick vini sínum í Mondo Genarator. Hann er svo svalur að mig langar að byrja að reykja þegar ég sé hann reykja.

3. Tony Iommi. Gítarleikari Black Sabbath. Hann er of svalur. Með krullurnar, mústasið og Gibsoninn. Pollrólegur og einbeittur á sviði. Alveg 100% hann sjálfur og missir ekki úr nótu sama hvað gegnur á á sviðinu.

2. Jónbi í Brain Police. Jafn tignarlegur og snæviþakinn Hraundranginn á stilltum, björtum og frostríkum vetrarmorgni. Þegar hann sest bakvið milljón króna trommusettið sitt halda honum engin bönd. Villidýr tekur völdin í líkama dagfarsprúðs bakara. Hárið, skeggið og gleraugun skapa alvöru rokk karakter. Reyndar á allt bandið heima á þessum lista. Með Gulla meðtöldum. Tignarlegasta og besta rokkband landsins og þótt víðar væri leitað

1. Phil Lynott. Frontmaður Thin Lizzy. Ég hefði svooooo mikið viljað sjá þennan mann á sviði. Sjá hann plokka bassann, syngja og rokkar. Það hafa ekki verið gerðar styttur til minningar um marga rokkara en það er til stytta til heiðurs þessa snillings. Og hún er ekki jafn tignarleg og hann Phil var! Hann fæddist í Birmingham árið 1949. Það var eitthvað í loftinu eða vatninu þarna í Birmingham á þessum árum sem gerði menn afar hæfileikaríka tónlistarmenn. Hann fluttist svo ungur til Dublin og ólst þar upp. Það hefur eflaust verið erfitt að vera eini blökkumaðurinn Dublin þar sem á þessum tíma var BARA rauðhært fólk. En það hefur greinilega hert hann. Og þar hefur rauðhærða fólkið án efa hjálpað til því það er gott fólk.

» 16 hafa sagt sína skoðun

10.01.2007 17:38:30 / EinarGudna

Námsmenn athugið!!!

Þar sem ég er svo rosalega lífsreyndur og óákveðinn í námi þá á ég alveg stafla af bókum fyrir tugi þúsunda sem ég vildi gjarnan losna við.

Weak State in the International System – Michael Handel

Rethinking International Relations- Fred Halliday

Understanding Democratic Politics – Roland Axtman

Principles of Economics- N. Gregory Mankiw (Enn í plastinu)

Framkvæmdir og Vinnuvernd – Eyjólfur Bjarnason

Efnisfræði Byggingagreina- Jón Sigurjónsson

Mannkynssaga eftir 1850 – Asle Sveen og Svein A. Aastad

Sidste Stop – Brynhildur Ragnarsdóttir og Kirsten Fridriksdóttir.

Ég veit ekki alveg hvaðan þessi dönskubók kom. Það er svo langt síðan ég var í dönsku að það er örugglega hætt að kenna þessa bók. En það má reyna.

Ef þið viljið kaupa einhverja af þessum bókum þá er um að gera að hringja í mig í síma 823 1642.
Ég á fleiri bækur einhvers staðar sem ég bæti bara á listann ef ég finn þær.

» 5 hafa sagt sína skoðun

07.01.2007 21:34:43 / EinarGudna

Sniðgöngum 365 Ljósvakamiðla!

Hvað er málið með útvarp á Íslandi?

Enn einu sinni er verið að leggja niður útvrpsstöðvar. Nú síðast voru það X-FM og Kiss Fm sem máttu bíta í það súra epli. Mér er nú alveg sama um Kiss Fm og það sjá nú líklega fáir á eftir þeirri stöð, nema að sjálfsögðu Party Ella sem er eðalmaður að innan og utan. En mér þykir það mjög leiðinlegt að X-Fm sé ekki til lengur. Ekki því þeir hafi spilað svo æðislega músík, þó gullmolar hafi heyrst inn á milli, heldur aðallega því nú vakna ég ekki lengur með Capone.

Það sem verst er í öllu saman er af hverju og hvernig þessar stöðvar voru lagðar niður. Maðurinn sem átti X-FM sem ég mun í þessari grein kalla “Sigurð”, er líka helsti siðskiptaráðgjafi 365 Ljósvakamiðla. Er það eðlilegt? Þessi maður á að sjá um að X-FM sem er í hans eigu borgi stefgjöld. Ég held að ég fari rétt með að stefgjöldin séu 300 þúsund kall á mánuði og um áramót er ætlast til þess að stöðvarnar borgi tryggingu upp á einhverja ákveðna upphæð sem Stef getur gengið í ef stöðvarnar klikka á að borga einhventíman. Þessa tryggingu neituðu hinir nýju eigendur X-FM og Kiss FM að borga, sem þýddi aðeins það að þeir fengu ekki áframhaldandi útvarpsleyfi. En þeir borguðu fyrir hinar 50 stöðvarnar sem þeir eiga. Svo notuðu þeir Fréttablaðið sem er einmitt líka í eigu 365 til að segja fréttir af því að þessar stöðvar hefðu verið lagðar niður því þær hafi misst útvarpsleyfið.

Þetta kallar maður að drepa samkeppni. Augljóslega var X-Fm með meiri hlustun en X-ið því á X-inu er aðeins spilað nu metal-háskólarokk-ímó-pabbi minn misnotaði mig í æsku og ég er bitur rusl tónlist sem ENGINN maður eða kona sem komin er yfir kynþroskaskeiðið höndlar að hlusta á. Þetta er svo skrítið því Máni og Frosti er nú alveg góðir gaurar, en fá greinilega ekki að ráða neinu í sambandi við lagaval á stöðinni. Eini munurinn á hlustendum X-ins og FM 957 er sá að þeir sem hlusta á Xið eru með svart naglalakk. Það er sama fjöldaframleidda ruslið spilað á þessum stöðvum. Og þá er ég ekki að tala um að X-FM hafi spilað eintóma snilld. Það er alla vega enn einu sinni búið að drepa morgun útvarp á Íslandi. Nú mun ég frekar hlusta á borvélina en að setja útvarp á hausinn á mér í vinnunni. Nema ég hlusti á Rúv eða Arnþrúði Karlsdóttur. Ég hef líka heyrt því fleygt fra mönnum úr innsta hring að 365 muni kaupa Skjá 1 á þessu ári til þess eins að leggja hann niður.

Ég hvet alla þarna úti til að sniðganga 365 Ljósvakamiðla. Þó að þeir eigi nánast Ísland þá getum við reynt. Við megum ekki láta svona skítapakk vaða yfir okkur. Ekki hlusta á neinar stöðvar í eigu þeirra, segjum upp Stöð 2 og kveikjum í Fréttablaðinu! Mér líður eins og ég búi í Sovétríkjunum.

Ég hvet líka Björgólfs feðga, Valla Sport eða bara einhverja töffara sem eiga pening og vilja koma upp á móti 365 til skvera upp eins og nýrri útvarpsstöð þar sem þeir Andri og Búi ráði ríkjum. Sú stöð myndi pottþétt meika það. Þeir geta líka hringt í mig ef þeir vilj vita hvernig á að gera þetta;)

» 15 hafa sagt sína skoðun

01.01.2007 18:32:21 / EinarGudna

.......og svarið er...................

Gleðilegt ár kæru vinir og takk fyrir það gamla.

Ég vil byrja á því að þakka Ríkissjónvarpinu fyrir besta Áramótaskaup sem ég man eftir. Þvílík snilld! Það verður horft á það aftur í kvöld. Þetta fær mann alveg til að gleyma hörmungunum sem voru síðustu áramót.

Ég vil líka þakka þeim Ásgeiri og Gumbó kærlaega fyrir frábært teiti í gær. Ég sé grímu-áramótaball alveg fyrir mér sem árlegan viðburð.

Það voru alls konar furðufuglar sem mættu.
Eftirminnilegastir eru þó örugglega þeir Tinni, Kolbeinn kapteinn, Skafti og Skapti.


Þessi Bæjari kom og sá um að stuðið væri í hámarki til morguns.

Ekkert er partyið ef starfsmenn Ikea og Byko mæta ekki.


Captain Morgan var á barnum


Og eins og ábyrgðarfullum party höldurum sæmir þá fengu þeir hjúkku á staðinn ef eitthvað kæmi uppá.

Þetta er ekki allt. Því þarna voru líka prinsessur, læknir, Shrek, Svampur Sveinsson, Elvis, Víkingar, feit kona, dúkka, dólgur, Hamlet, Gísli Marteinn, Kalli Bjarni, Zorro, Banani í náttfötum og fullt af fleiri skemmtilegum karakterum. Það eru einmitt komnar inn myndir úr teitinu inn í Myndaalbúm Lesblindu.

» 9 hafa sagt sína skoðun

28.12.2006 21:41:38 / EinarGudna

Hver er þinn uppáhalds?



Hver verður fyrsti helgar pabbinn?
Ásgeir 8%
Baldur 10%
Einar Gella 4%
Einar Guðna 32%
Einar Haralds 5%
Gunnar Ingi 5%
Steini 18%
Sigurgeir 5%
Gisli 6%
Þorvaldur Ólafsson fv. markmaður 7%

Hér sjáum við úrslit síðustu könnunar. Það voru akkurat 100 sem kusu. Eða það koma 100 atkvæði í könnunina alla vega.
Það er greinliegt að fólk hefur þá tilfinningu að herramaðurinn Einar Guðnason verði fyrsti helgar pabbinn. En það er rangt hjá þessu 32 % prósentum sem kusu hann.

En nú er ný könnun komin á síðuna. Hver er þinn uppáhalds blökkumaður? Við erum búin að kjósa um svalasta rokkarann og svölustu rauðkuna og nú er komið að svalsta blökkumanninum. Ég er búinn að velja 10 sem mér þykir skara framúr en það voru þó alveg töluvert margir í viðbót sem ég hefði viljað hafa á listanum, eins og til dæmis Kolo Toure, Johnny Lee Hooker og Napoleon Murphy Brock . Og auðvitað blökkumaðurinn í Live and let die.

Hér að neðan hef ég sett myndir af þeim 10 sem kosið er um til að auðvelda ykkur valið. Líka svo þið getið tengt andlit við nafnið ef þið kannist við nafnið en munið ekki eftir kauða.



Thierry Henry. Besti framherji í heimi



Ian Wright. Gamalt goð úr boltanum, en umfram allt töffari



Jimi Hendrix


James Brown. Gaurinn sem Hulda jinxaði




Phil Lynott. Aðal maðurinn í Thin Lizzy, bestu ísrku sveit sögunnar. Töluvert svalari frontmaður en Bubbi


Bill Cosby. Fyrirmynd allra feðra



Blökkumaðurinn í Village People....



.....og kópían hans, Orri litli sæti fyrrum busastrákur.



Muddy Waters. Einn flottasti blúsari sögunnar



og að sjálfsögðu Dr. Hibbert

Hvert atkvæði skiptir máli!

Og endilega ef ykkur finnst einhver sem ekki komst á listann svalari, skrifið komment

» 6 hafa sagt sína skoðun

19.12.2006 22:16:43 / EinarGudna

Hvað skal gefa og hvað skal ekki gefa í jólagjöf


Jæja, þá styttist í jólin. Og hvað er aðal málið við jólin? Jú það eru gjafirnar. Sama hvað þið segið gjafirnar eru aðal málið! Í gamla daga var aðalmálið hvað manni langaði í en núna er það hvað maður á að gefa öðrum. Ef þið eruð í vandræðum með að finna eitthvað fyrir einhvern sem ykkur þykir vænt um get ég hjálpað ykkur.

Af fenginni reynslu af jólunum þá veit ég að fáar gjafir gleðja mann meira en góð geislaplata. En auðvitað skiptir máli hvaða geislaplata kemur úr pakkanum. Sumir viti ekkert hvað þeir vilja. Velja bara nokkrar vinlsælar plötur úr plötutíðindum til að setja á óskalistann. Og þeir sem gefa spyrja oft á tíðum misfróða starfsmenn plötuverslanna t.d. “Hvað er svona vinsælast hjá 15 ára strákum”.

Kæru vinir, látið það eiga sig. Hér að neðan eru leiðbeiningar til ykkar svo að þið getið sett góða plötu á listann já eða gefið einhverjum ástvini gæðagrip sem verður betri með árunum.

Black Sabbath með hljómsveitinni Black Sabbath. Plata sem allir áhugamenn um rokktónlist og þá sérstaklega þungarokk fyllast lotningu við að heyra minnst á. Kannski ekki “easy listening” eins og Bretinn segir, og svolítið drungaleg á köflum, en þessi plata inniheldur m.a. besta gítarsóló sögunnar.
Blues For The Red Sun með Kyuss. Maður á ekki að reyna að lýsa þessari plötu með orðum. Hlustið bara og þá vitið þið hvað ég er að tala um


Electric Fungus með Brain Police. Án þess að ég sé með neinn hroka þá er þetta óumdeilanlega lang besta hljómplata sem íslensk hljómsveit hefur gefið út. Ef þið eruð ekki sammála þá er það vegna þess að þið eigið ekki plötuna;)


Master of Reality með Black Sabbath. Þetta er plata þar sem nákvæmlega allt er 100%! Sándið er fullkomið og nokkur af bestu þungarokks slögurum allra tíma eru á þessu meistarastykki.
Siamese Dream með Smashing Pumpkins. Þessi plata er falleg, þunglynd, tillfinningarík, hress og sækadelísk allt í senn. Platan sem bjargaði mér frá ruglinu.




Að sjálfsögðu get ég sagt ykkur hvað þið eigið að forðast.

Í guðanna bænum forðist:

- Human Clay með Creed. Vá! Ég tala af reynslu. Fekk þessa plötu þegar hún kom út og hlustaði nokkrum sinnum á hana og fekk ör á sálina sem enn er ekki gróið! Það eintak er ekki til lengur.....

-Under Cover með Ozzy. Plís ekki! Nema að þið hafið gaman af að heyra “Whipped” Metal Guði skíta í brækurnar

-allar plötur með U2. U2 er eitt ofmetnasta fyrirbæri sem fyrirfinnst.

-alla hlutir sem hafa nafnið 200.000 Naglbítar á. Sérstaklega hljómplötur!

-allar plötur með fólki sem hefur tekið þátt í Idol eða Rock Star.

Þar hafið þið það. Ég vona að þetta auðveldi ykkur jóla innkaupin og eða að gera óskalista.

Ef þið vitið um einhverjar góðar plötur eða plötur sem ætti að forðast væri gaman að fá komment á það!

Gleðileg jól


» 14 hafa sagt sína skoðun

13.12.2006 21:29:28 / EinarGudna

Cause I don't care for Trafalgar Square if you'r not there

Þann 13. september árið 2003 varð ég 19 ára. Þann sama dag komst Víkingur upp Úrvalsdeild. Á þessu tíma fannst mér ég vera rosalega fullorðinn. Í ágúst þetta ár fórum við kumpánarnir í útskriftarferð til Krítar. Þær tvær vikur eru með skemmtilegustu vikum ævi minnar. Ég væri alveg til í að upplifa svipaðar tvær vikur aftur. Maður gerði sitt í að festa nokkrar minningar þaðan á filmu, en þar sem ég er afar tækniheftur maður tók ég bara einnota myndavél með mér. En hann Sigurgeir var svo sniðugur að eiga digital myndavél á þessum tíma og tók alveg helling af myndum og þær er einmitt hér til vinstri.

Ég var að skoða þessar myndir um daginn og mér bara brá hversu barnalegir við erum!

En hver hefur breyst mest?
Einararnir


Baldur


Steini


Sigurgeir


Gunnar Ingi

Ásgeir


eða Einar Guðna

Endilega segið ykkar álit

p.s. Hver gæti verið svo frábær að skutla mér og C. Woody út á flugvöll um svona rétt fyrir 2 á föstudaginn?

p.s. 2. Ég var að setja inn myndir úr afmælinu hans Steina inn í Myndaalbúmið

» 11 hafa sagt sína skoðun

11.12.2006 18:56:34 / EinarGudna

Glory Days

Söng hinn ömurlegi Bruce Springsteen hér í den og gerir örugglega enn einhvers staðar.

En það eru engu að síður gleða dagar hjá okkur því í dag á prinsinn okkar hann Steini afmæli. Hann er 22 ára í dag. Ég man enn eftir því er ég sá þig í fyrsta sinn, í stofu 4 í S álmunni í Snælandsskóla. Ég man líka hversu hressilega þú snýttir þér fyrsta daginn þinn. Góðir tímar. Til hamingju Steini




Það er ekki bara dagurinn í dag sem er gleðidagur því á morgun, 12. desember, á Greifinn hann Einar Helgi Ármann 22 ára afmæli. Ég man líka eftir fyrsta fundi okkar Einars við Þjóðleikhúsið. (Þó hann haldi öðru fram). Góður fundur! Til hamingju Einar!

» 8 hafa sagt sína skoðun

07.12.2006 21:51:07 / sibbsibb

Shall I tell you a joke? Buy a bra!

Ég fékk sendan þennan brandar í E-pósti um daginn. Ákvað að deila honum með ykkur!

Vélin ótrúlega í apótekinu

 

Dag einn var Pési að kvarta við vin sinn: "mér er alveg hrikalega illt í  olnboganum. Ég held að ég verði að fara til læknis".

 

Félaginn sagði: "ekki gera það, það er komin alveg ótrúleg vél niðrí apóteki  sem getur sagt þér nákvæmlega hvað það er sem hrjáir þig.

 

Það er mikið fljótlegra og ódýrara en að fara til læknis. Þú setur bara  þvagsýni í vélinaog hún segir þér hvað er að þér og hvað þú átt að gera í  því, og  það  kostar bara 500 kall".

 

Pési ákvað að hann hefði engu að tapa og fór með þvagsýni í apótekið.

 

Þegar hann var kominn þangað hellti hann sýninu í vélina og borgaði 500  kallinn.

 

Vélin fór að framkalla skrítin hljóð og fullt af ljósum blikkuðu.

 

Eftir smá stund kom prentaður miði úr vélinni sem á stóð:

 

Þú ert með tennisolnboga.

 

Láttu hendina liggja í heitu vatni, vefðu heitum bökstrum um olnbogann og  forðastu erfiðis vinnu, þá ættir þú að vera orðinn betri eftir tvær vikur.

 

Seinna um kvöldið var hann enn að hugsa um hversu mögnuð vélin væri og datt  allt í einu í hug hvort ekki væri hægt að plata hana, eftir smá umhugsun  ákvað hann að reyna. Hann blandaði saman kranavatni, hundaskít úr hundinum  sínum og þvagsýnum úr bæði konu sinni og dóttur, og til að toppa þetta  runkaði hann sér í blönduna. Daginn eftir fór hann í apótekið, hellti  blöndunni í vélina og borgaði 500 kallinn. Vélin byrjaði strax að blikka  ljósum og framleiða hávaða og prentaði síðan út eftir farandi greiningu:

 

Lagnirnar hjá þér eru ryðgaðar, hringdu á pípara. Hundurinn þinn er með  orma, farðu með hann til dýralæknis. Dóttir þín notar kókaín, sendu hana í  meðferð. Konan þín er ólétt, þú átt það ekki, fáðu þér lögfræðing.  Hættu svo að runka þér annars batnar þér aldrei í olnboganum!

:haha::haha:




» 3 hafa sagt sína skoðun

05.12.2006 00:16:32 / EinarGudna

Við og Celeb. 2. hluti

Já það er ekki á hverjum degi sem við hittum merkilegt fólk. En til að ég geti montað mig af sjálfum mér og vinum mínum ætla ég að sanna það fyrir ykkur að það gerist oftar en ekki


Ég var svo heppinn að hitta söngdívuna og knattspyrnukonuna Gretu Mjöll Samúelsdóttur fyrir algjöra tilviljun heima hjá henni á afmælisdaginn hennar


Nokkrum dögum síðar hitti Greta George of the Jungle á flugvelli erlendis


Kópavogsbúinn og sagnfræðineminn Kristófer Eggertsson, eða KRE eins og hann er stundum kallaður, hitti Lalla Johns á Kaffi Austurstræti eittkvöldið. Til gamans má geta að góður vinur minn fór einu sinni á stefnumót á Kaffi Austurstræri. Og það er enginn lygi. Getið hver það var...


Tommi Tröll hitti ljónið í Nýju fötum keisarans á Flórida hér um árið


SBS og Linda hittu Jim Carrey um daginn.


Hulda og Kea skyr stelpan hittu Amber Moore sem leikur í Bold and The Beautiful. Hulda gaf Amber tyggjó!


Arnar Girlypop og Siggi Trust (áður Cosmo Kid) hittu engann annan en Jónsa í Svörtum Fötum einhvertíman einhvers staðar. Þetta er þó ekki hápunktur í lífi Arnars alla vega því........


.....að hann og Gunnar hittu engann annan en Einar Guðna á Strikinu í sumar fyrir algjöra slysni!

» 9 hafa sagt sína skoðun

03.12.2006 17:21:10 / EinarGudna

Come with me and I'll show you the Erection Boogie


Þessi kumpáni á afmæli í dag. Hann er 58 ára í dag. Til hamingju. Ég fer í kaffiboð til hans á eftir. Amma mín átti líka afmæli í gær, hún varð 78 ára. Til hamingju með það allir. Ég fór í kaffiboð til hennar í gær. Þar hitti ég nokkrar frænkur sem ég hef ekki séð áður. Þær eru örugglega svona 50 ára og eldri. Þegar ég mætti sagði amma “Þetta er hann Einar sonur Guðna” Þá segir ein við pabba “Mikið áttu sætan strák Guðni. Þið eruð ekkert líkir. Þú ert ekki svona sætur. Þú varst aldrei svona sætur” Og svo knúsaði hún mig eins og enginn væri morgundagurinn. Og þessi var 50 ára frænka mín! Toppiði það! En pabbi minn er samt alveg myndarlegur.

Ég og Pabbi ætluðum svo í jeppaferð í dag. Ég á mínum og hann á sínum, og svo myndum við tala saman í talstöðvunum. Djöfull hefði það verið kósý. En Gullfoss kom í heimsókn til pabba svo þessi ferð verður að bíða betri tíma.

Ég fór í fyrsta prófið mitt á föstudaginn. Próf í efnisfræði. Ég veit að það hljómar spennandi. Þegar ég var sestur við borðið og kominn með prófið í hendurnar teygði ég mig ofaní töskuna mína eftir blýanti. Á einhver ótrúlegan hátt næ ég að stinga mig í puttann. Á blýantinum líklega. Það fossblæddi alveg og ég nennti ekki að byrja prófið á því að trufla alla og segja það blæðir úr puttanum mínum. Ég setti bara hendina inn í ermina og lét blæða í peysuna. Gaurnum sem sat yfir prófinu fannst þetta frekar grunsamlegt. Hann var yngri útgáfa á gaurnum á Pizza King og horfði stöðugt á mig (sem er frekar óþægilegt í prófi) og beið eftir að sjá mig draga svindlmiða úr erminni. Þar sem ég gerði það ekki ákvað hann að standa upp og trufla alla sem voru að taka próf inni í stofunni með því að segja hátt og snjallt með ítölskum hreim “Hérna hvað ertu með hérna” og benti á ermina. Ég dró blóðuga hendina út og segði ekki neitt. Það var ekki næg sönnun heldur þreyfaði hann upp alla höndina á mér í leit að einhverju svindl verkfæri. Þegar hann fann ekkert spurði hann aftur mjóróma með ítölskum hreim af hverju ég hefði hendina inn í erminni sýndi ég hönum hendina aftur og sagði það blæðir. Á þessum tímapunkti voru allir að horfa á þessi viðskipti okkar frekar en að einbeita sér að prófinu, og hugsuðu “Þessi ungi maður er örugglega holdsveikur”

Prófið var klukkan 6 svo ég reyndi að læra um daginn. Um 4 var einbeitingin farin eitthvert annað. Ég var búinn að grafa upp fyrstu Brain Police plötuna og var að reyna að finna dýpri merkingu lagsins Erection Boogie þegar hún Steinunn frænka hringir í mig. Alveg á eyrunum! Hún var að dimmitera í mörgæsabúning. Hún hringdi í mig áður en hún drakk hvítlauksolíu á stút til þess að segja mér að ég væri næst mesta dúllan og næst besti vinur hennar. Þetta var skemmtilegt símtal sem vakti mig og lét mig fara að læra aftur. Steinunn ef ég næ þessu prófi þá er það þér að þakkka!



Ég varð að setja þessa mynd. Ég fann hana um daginn og henni fylgja góðar minningar. Frá vinstri George Lazenby, Daniel Craig og Roger Moore.

P.S. Fyrirgefðu Sigurgeir

» 5 hafa sagt sína skoðun

27.11.2006 17:28:53 / EinarGudna

Þetta er nú einu sinni blog síða.....


1. Ef þú þekktir mig ekki, og mættir mér eitthversstaðar, myndirðu halda að ég væri á föstu eða lausu?

2. Þegar þú hugsar til mín hvaða fimm hlutir detta þér fyrst í hug?

3. Hvernig sérðu mig fyrir þér í hljómsveit?

4. Hvernig stelpa er ég, og í hvaða týpu flokkarðu mig?

5. Hvaða lag minnir þig á mig?

6. Hverjum öðrum er röddin mín líkust?

7. Hvað giskarðu á að ég verði gömul þegar ég trúlofa mig?

8. Hversu vel telurðu þig þekkja mig?

9. Hvernig stráka fíla ég?

10. Hvað geri ég oftast þegar ég á frítíma?

11. Hvað er mest einkennandi við mig?

12. Hvaða búðir elska ég að fara í?

Ég stal þessu af annarri blog síðu. Þetta er "of mikið ég" til þess að sleppa þessu! Ég verð sármóðgaður út í hvern þann sem svarar þessu ekki!

Og ekki breyta merkingu spurninganna.....

» 19 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 20